Um okkur
Hjá KEF Guesthouse & CarPark höfum við þjónað ferðalöngum sem fara um Leifsstöð síðan árið 2015. Við leggjum áherslu á örugga langtímageymslu, áreiðanlega skutluþjónustu allan sólarhringinn og fjölbreytta aukaþjónustu sem gera ferðalagið þitt einfaldara.
Við erum staðsett að Grænásvegi 10 í Reykjanesbæ, í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá flugstöðinni. Auk bílageymslunnar bjóðum við upp á sérhæfða bílaþjónustu á borð við almennan þvott, djúpþvott, bón og fleira.
Eigendur rafbíla geta einnig bókað hleðslu á bílinn. Ef sú þjónusta er valin höfum við samband 1–2 dögum fyrir áætlaða heimkomu (miðað er við að upprunalegt hleðslutæki bílsins sé í bílnum).
Get a Room ehf. | Kt. 540217-0760 | Sími: 588-9999

Svæðið okkar er vel upplýst og vaktað með öryggismyndavélum allan sólarhringinn svo þú getir ferðast áhyggjulaus.
Langtímageymsla, bílaþrif og rafbílahleðsla – við sjáum um bílinn þinn á meðan þú nýtur frísins.
Skutlan okkar er á ferðinni allan sólarhringinn, alla daga ársins. Við mætum þegar þú þarft á okkur að halda.
Frá árinu 2015 höfum við tryggt þúsundum viðskiptavina örugga og þægilega lausn fyrir bílinn fyrir og eftir flug.